
Úfff, hvað mér brá. Ég hélt í
smátíma að þú ættir við að
tölvan mín væri komin með vírus.

Heyrðu, heldurðu að það séu ekki neinar auðveldari
aðferðir til að verjast þessum vírusárásum?




|
Dreifing
tölvuvírusa eða orma (sem senda sig sjálfir áfram
gegnum netfangalista í póstforriti hinnar sýktu tölvu)
fer í dag aðallega fram gegnum Netið í dag. Þess
vegna er mikilvægt að huga að því að allar
vírusvarnir séu í lagi.
Núna
stendur yfir mikil ormaveisla á Íslandi og um allan heim.
Það er tölvuormurinn SoBig.F sem æðir um heiminn,
hann hegðar sér þannig að hann lætur smitaðar
tölvur senda sýkt skeyti áfram til þess að
dreifa orminum til einhvers netfangs sem valið er af handahófi
úr netfangaskrá sýktu tölvunnar. Pósturinn
er einnig látinn líta út fyrir að koma frá
einhverju öðru netfangi úr skránni.
SoBig.F
er þannig að hann eyðir sér sjálfur 10. september.
Helsti skaðinn er aukið álag á vefþjóna.
SoBig, sem ræðst eingöngu á vélar sem hafa
Windows-stýrikerfi, tekur tvö netföng úr netfangaskrá
hinnar sýktu tölvu. Ormurinn sendir sýktan póst
frá sér og lætur líta svo út sem pósturinn
sé sendur frá öðru tveggja netfanganna og sendir
á hitt netfangið sem hann hefur valið.
 Ormurinn
dreifir sér með tölvupósti og öruggasta leiðin
til að komast hjá því að sýkja tölvuna
sína er að opna ekki torkennileg viðhengi og að uppfæra
veiruvarnir reglulega.
Ekkert
lát á útbreiðslu tölvuormsins Sobig-F
Mbl.is 22.8.2003
SoBig.F
skaðlegri en upphaflega var talið
Mbl.is 21.8.2003
Síminn
Internet stöðvaði um 160.000 vírusskeyti frá
því í gær
Mbl.is 20.8.2003
Skaðlítill
en hvimleiður tölvuormur dreifir sér hratt um Netið
Mbl.is 19.8.2003
Hvernig
á að verjast veiruárásum?
Aco 20. ágúst
Ýmsir fleiri fréttamolar á vef Aco http://www.atv.is
Sobig.F
ormurinn og úrræði gegn honum Aco 20. ágúst
Sogbig-F
sýkti fleiri pósthólf en LoveBug-ormurinn 21.8.2003
Friðrik
Skúlason
Um
tölvupóst og vírusa
Snerpa á Ísafirði
Ormurinn
veldur óskunda víða um heim
Tölvuheimur 12.ág.03
Örugg
notkun Netsins
Heimili og skóli
Bæklingur
frá Heimili og skóla
um örugga notkun Internetsins
Góð
regla er að opna aldrei viðhengi sem ekki er von á eða
vitað hvað er.
Salvör
Gissurardóttir
Síðast uppfært
25-aug-03
|