home syllabus assignments materials community

Til baka

Vefrallý - Leiðbeiningar

Stundum erum við að æfa nemendur í að leita að þekkingu á Netinu og vera snöggir að því. Þá er upplagt að búa til vefrallý, bara safn af spurningum sem nemendur eiga að svara og á sem skemmstum tíma. Við látum þá fá nokkrar vefslóðir (getur þess vegna bara verið ein) og svo spurningalista. Þetta hentar líka ágætlega í hópvinnu, þá geta nemendurnir æft sig í að skipta með sér verku. Þetta er því eins konar spurningakeppni með tímaverði - Allt gengur út á að vera fljótur. Þetta geta verið sundurlausar spurningar sitt úr hvorri áttinni og ýmis smáatriði en þetta geta líka verið safn af spurningum sem við höfum sérstaklega valið til að byrja að kynna nemendum okkar eitthvað nýtt efni, tökum sem dæmi að við ætlum að taka fyrir hvali í kennslunni og byrjum með vefrallý um háhyrninga eins og í dæminu hér á eftir. Vefrallý getur líka verið undirbúningur fyrir nemenda.

Vefrallý - tilbúið skema
Þú getur búið til vefrallý og sett á vefsíðu eins og þú vilt. Ég hef sett upp tilbúið skema sem þú getur stuðst við ef þér finnst það betra og nokkra borða til að æfa að setja myndir inn á vefsíður.

Þrjú dæmi um vefrallý

Vefrallý um Umhverfisvef Reykjavíkur. Dæmi frá Salvöru um vefrallý til að kynna umhverfismál í Reykjavík og Umhverfisvef Reykjavíkur.

Vefrallý um upplýsingaveitu sjávarútvegsins Dæmi frá Salvöru til að sýna hvernig við getum notað tilbúnar uppsetningar.

 

Vefrallý um háhyrninga
Kynning - Dæmi um vefrallý

Við ætlum að skoða háhyrninga ! og vera fljót að því!

Verkefnið

Notaðu krækjurnars til að svara 15 spurningum um háhyrninga. Þessar spurningar og svörin varða byrjunin á því að við ætlum að kynnast hvölum og lífríki sjávarins....

  • Myndir Jóns Hlíðbergs af hvölum
  • Hvalir - Musa
  • Vísindavefurinn um hvali
  • Háhyrningur
  • Íslandsvefurinn - lífríkið
  • Hvalir og menn
  • Keikó (á ensku)
  • Keikó námsefni (á ensku )
  • Discovering Whales 

    Ábendingar af á að nota t.d. í að skrifa ritgerð. (þetta þarf ekki ef vefrallý á að vera bara keppni og ekki á að vinna neitt meira með þá þekkingu sem nemandinn safnar)

  • Æfðu þig í að svörin séu heilar setningar. Það er góð æfing ef þú seinna ætlar að setaj í skýrslu eða ritgerð.
  • Mundu að skrá hjá þér heimildir, á hvaða vef fannstu svarið?
  • Ef þú finnur eitthvað áhugavert á einhverjum undirvef  mundu eftir að safna slóðinni (setja í favorite eða bookmakr)
  • Reyndu að setja það sem þú finnur upp á myndrænan hátt.
  • Lestu fyrst gegnum allar spurningarnar.

Hér koma svo spurningarnar ( það verður að vera hægt að finna svörin við þessum spurningum á vefslóðunum sem þú beinir nemendum á.

Hvað geta háhyrningar orðið þungir
Hvað eru háhyrningar vanalega stórir?
Hvað lifa háhyrningar lengi?
Hvað eru margir hvalir við Íslands?

........og svo framvegis.....

©2002 Salvör Gissurardóttir