| Vefleidangur
- Leiðbeiningar

Skoðaðu þennan vef Byggjum
upp vefleiðangur sem Þórunn Óskarsdóttir
hefur íslenskað.
Skoðaðu þessa Glærukynningu
um vefleiðangra eftir Salvöru Gissurardóttur.
Skoðaðu dæmi um vefleiðangur : Vefleiðangur
um súkkulaði eftir Salvöru Gissurardóttir
Vefleiðangrar
Að safna og nota og uppbreyta gögnum - í anda hugsmíðahyggju
og lausnaleitanáms
Við höfum áður farið í verkefni
fyrir nemendur sem tengjast því að þeir eiga
að safna saman ýmsum upplýsingum á Netinu.
Svoleiðis verkefni eru t.d. vefrallý. Við viljum
hins vegar oft búa til verkefni sem ganga lengra en aðeins
að safna saman gögnum - við viljum að nemendur
vinni að verkefnum þar sem þeir viða að
sér nýrri þekkingu og nota hana til að búa
til eitthvað, skapa eitthvað eða leysa vandamál.
Við erum ekki að leita eftir því að nemendur
geti tileinkað sér þekkingaratriði til að
geta þulið þau upp heldur að reyna að þjálfa
nemandann í bæði að safna og nota upplýsingar
við eitthvað verðugt viðfangsefni.
Hér er aðalatriðið að það sé
eitthvað verkefni, eitthvað vandamál sem þarf
að leysa. Það er líka kjarninn í lausnaleitanámi.
og í anda hugsmíðahyggju. . Við búum
til vefleiðangur þar sem fókusinn er á verkefnið
- hvað á að koma út úr vinnu nemenda
- hvernig eiga þeir að nota það sem þeir
hafa lært.
Vefleiðangur er staðlað form af verkefnum þar
sem við byrjum á segja hvert viðfangsefnið ,
hvað á að koma út úr verkefninu og
í hvaða hlutverki nemandinn er. Við komum með
tillögu um vinnulag (ferli) og gefum upp vefslóðir
þar sem nemandinn á að leita fyrir sér og
segjum honum hvernig verkefnið verður tekið út.
Erlent efni um vefleiðangra
Þjálfunarefni fyrir kennara til að búa
til vefleiðangur
Það er til urmull af efni á ensku um vefleiðangra
(webquests) og best er að nálgast það á
The Webquest Page..
Þar eru bæði margir tilbúnir vefleiðangrar
og svo ýmis konar kennsluefni og hjálparefni fyrir
kennara sem vilja búa til vefleiðangur. Skoðaðu
þjálfunarefnið um vefleiðanga.
Spáðu í hvaða gerð af verkefni (task)
nemandi á að leysa og hve hlutverk hans getur verið
mismunandi. Hér er góð
skýringarmynd af hvernig verkefni eru flokkuð. Nemandinn
getur verið í hlutverki vísindamanns, blaðamanns,
ræðumanns, hönnuðar o.s.frv.
Þú getur líka sjálf(ur) æft þig
á að fara í gegnum einn vefleiðangur sem nemandi,
það er einmitt til vefleiðangur sem kennig og kynnig
vefleiðangra Webquest about webquest.
Þú getur líka skoðað mjög
marga vefleiðangra á ensku fyrir öll skólastig.
Íslenskir vefleiðangrar
Frá því að ég kynnti fyrst vefleiðangra
á námskeiði í Kennaraháskólanum
í byrjun árs 1998 hafa fjölmargir kennarar búið
til svona verkefni og margir kennt öðrum kennurum að
búa þessi verkefni til. Vefleiðangrar falla líka
vel að
nýrri námskrá í upplýsinga- og
tæknimennt. Ég hef tekið saman banka yfir vefleiðangra
sem nemendur mínir í KHÍ hafa gert á
námskeiðum hjá mér en oft vill það
brenna við að nemendur hætta og heimasíðusvæði
er lokað og þá glatast verkefnin. Skoðaðu
verkefnabankann en athugaðu að sumar krækjur virka
ekki. Nemendur sem voru á Nám og kennsla í
Netinu í fyrra gerðu líka allir vefleiðangra
og þú sérð þá á þessari
skilasíðu ásamt öðrum verkefnum þeirra.
Sum þeirra bjuggu til vefleiðangur við kennsluefni
sem þau höfðu líka búið til.
Að búa til vefleiðangur - Tilbúin snið.
Við skulum gera ráð fyrir að þú
hafir tilbúna hugmynd um vefleiðangur og hafir safnað
saman slóðum sem nemendur eiga að vinna með.
Það er þá auðvelt að setja vefleiðangurinn
inn á vefsíðu. Þú getur gert það
alveg frá byrjun eða notað þér að
það eru til nokkur tilbúin form sem þú
getur slegið upplýsingar inn í.
Ef þú vilt nota svona tilbúið form (þú
getur breytt um litu í töflunni eða reitum í
henni, sett inn bakgrunna og myndir) þá skaltu hafa
það á skjánum og velja File>Save as og
vista það en athugaðu að breyta SAVE AS TYPE í
Web Page, HTML only annars virka nefnilega innbyrðis tengingarnar
ekki rétt. Vistaðu vefleiðangursformið undir
einhverju nafni (ekki nota séríslenska stafi) t.d.
vefleidangur1.htm eða einhverju sem lýsir innihaldi t.d.
endurvinnsla.htm ef þetta væri vefleiðangur um endurvinnslu.
Ef þú vinnur í Frontpage þá getur
þú vistað vefleiðangursformið t.d. á
skjáborðið, opnað svo vefinn þinn í
Frontpage og dregið vefleiðangursformið inn (draga inn
í folder list og þaðan inn í folder list,
á sama hátt og þú dregur myndir inn í
images)
Svo skaltu þurrka út textann og skrifa þinn
texta í staðinn, setja tengingu í myndir og bakgrunna
ef því vilt. Vista síðan aftur og flytja
yfir á vefsvæðið. Auðvelt, ekki satt?
Þessi form eru frá mér:
vefleidangur1.htm
vefleidangur2.htm
vefleidangur3.htm
Frá Torfa er
þetta form
|