home syllabus assignments materials community

Til baka

Tæknisaga - Leiðbeiningar

Setjið stutta frásögn á tækniaðstæðum og framtíðarsýn upp á vefsíðu og/eða í vefdagbók.

1) Lýsing á aðstæðum varðandi tækni sem þið búið við núna:

Lýsing á hvaða tækni sem varðar upplýsingasamfélagið eru þið eruð að nota núna í árslok 2002 bæði í heimili, starfi og daglegu lífi og hvernig notið þið hana og hvernig gengur. Má gjarnan vera óformlega orðað og líka innihalda litlar frásagnir á hvernig þig og/eða fjölskyldan notar tæknina , hvernig tölvu eruð þið með, hvernig Internettengingu, hvar tengist þið?, hvernig notið þið Internetið? Er fleiri en ein tölva á heimilinu? Eruð þið með fartölvu? verslið þið í matinn gegnum Internetið? Kaupið þið eitthvað á Netinu eða hlaðið þið niður dóti þaðan? Eruð þið með GSM ? Líka svona dagsetningar sem sýna innreið ykkar í tækniheiminn, hvernær senduð þið fyrst tölvupóst, hvenær fenguð þið GSM, hvenær settuð þið upp vef fyrst? Hvaða tækni eruð þið að nota í vinnunni? hvernig hafa vinnuaðstæður breyst miðað við tækni? Hafið þið samband við einhverja erlendis gegnum tölvupóst, notið þið þetta til að styrkja tengsl við ættingja? Hefur tölvupóstur/GSM eða önnur samskiptaverkfæri breytt hvernig þig hafið samskipti? Eruð þið með aðgang að breiðbandi? Hvað dettur ykkur í hug varðandi tækninotkun? eruð þið að nota þráðlausar tölvur, eru þið að nota einhver tölvustýrð tæki eða tæki sem tengjast við tölvur (stafrænar myndavélar/upptökuvélar, rafræn vöktun etc) á heimili eða í starfi?

Ég vona að ef við öll söfnum upplýsingum um aðstæður okkar og ekki síst námsaðstæður á þennan hátt og lýsum öll með okkar eigin orum og hver lýsing/frásögn er á einni síðu þá séum við komin með mikilsverðan fróðleik, langar til að benda ykkur á sem sýnishorn einn vef sem er reyndar um annað en samanstendur af svona einstaklingsfrásögnum um tækniþróun (sjá http://www.simnet.is/konur/reynslusogur/index.htm ). Í okkar tilviki væri það að svona að fá svona mynd af á hvaða róli við erum núna. Gaman væri að hafa eitthvað myndefni sem tengist þessu t.d. myndir af fjölskyldu eða ykkur að nota tæknina sem þið hafið í dag.

2) Hver er framtíðarsýn ykkar - einn áratug fram í tímann??

Hér langar mig til að biðja ykkur að spá fram í tímann hvernig þið teljið líklegast að tæknilegar aðstæður ykkar hafi breyst eftir tíu ár bæði hvað varðar vinnu, nám og heimili? Hvernig tölvubúnað komið þið til með að hafa? Hvað komið þið með að geta gert sem þið getið ekki í dag? Hvernig hefur tæknin breytt vinnu ykkar? Hvernig hefur tæknin breytt samskiptum ykkar við aðra og heimilishaldi?

©2002 Salvör Gissurardóttir