| Powerpoint
- Leiðbeiningar
Margmiðun
og fjarkennsla með Powerpoint
Producer fyrir Powerpoint 2002
Salvör Gissurardóttir
Síðast uppfært
15-oct-03

Verkefni:
Gerðu kennsluefni í Powerpoint (5 til 25 glærur)
um sjálfvalið efni en þannig að það
henti til fjarkennslu þar sem fyrirlesari myndi segja
eitthvað með hverri glæru. Semdu texta sem á
að vera lesinn með hverri glæru.
Skilaðu glærusýningunni sem ppt skrá
og textanum sem á að vera lesinn með hverri
glæru í word skjali (eða sem speaker notes
inn í sjálfri glærusýningunni).
Settu powerpoint sýninguna upp á vefsvæðið
þitt og setti tengingu í það á
skilasíðunni.
Fjarnemar þurfa ekki að setja glærusýninguna
upp í Microsoft producer en boðið er upp á
það fyrir þá sem vilja gera slíka
tilraun. Gert er ráð fyrir að glærusýning
hvers staðnema taki í mesta lagi þrjár
mínútur í flutningi.
Fjarnemar þurfa ekki að gera upptökur heldur
bara að skila verkefninu á glærum með
texta (sem ætti að vera lesinn upp með glærum)
Verkefnið á sem sagt að vera tilbúið
hjá ykkur til að nota það í Microsoft
Producer (sem er kerfi sem hægt að að hlaða
niður á vefnum og virkar með Powerpoint). Þetta
á því að vera nokkur einfalt verkefni
hjá fjarnemum.
Hér eru dæmi um hvernig Microsoft producer er
notað:
Skóli án aðgreiningar
http://www.legalis.is/fyrirlestur_files/default.htm
Dagblöð í skólum
http://nkn.khi.is/dagblod_files/default.htm
Meira um Microsoft
producer
|

Powerpoint
2002 frá Microsoft
Producer
fyrir Powerpoint 2002
Þetta er ókeypis viðbótarverkfæri
fyrir löglega notendur Microsoft Powerpoint 2002 og hægt
er að hlaða þessu forriti niður af vefnum. Athugið
að forritið virkar eingöngu nema á tölvum
með Office XP og einhverju af þessum stýrikerfum
Windows XP Professional, Windows XP Home Edition eða Windows
2000.

Skoðaðu
kynningarefni um Producer fyrir Powerpoint
Powerpoint fjarkennsluefni
**************************
Margir kunna að búa til glærur í Powerpoint.
Á glærurnar setjum við texta og myn dir og svo
getum við notað okkur tilbúnar flottar uppsetningar
til að fá sama bakgrunn og texta á allar glærur.
Ef maður er að útbúa kennsluefni á
tölvu er Powerpoint einna einfaldasta kerfið til að
útbúa kennsluefni sem þarf að nota t.d.
ljósmyndir. Powerpoint er líka verkfæri sem
við getum notað til að útbúa fjarkennsluefni.
Þú átt á þessu námskeiði
að gera powerpoint námsefni sem samanstendur af glærum
og texta sem fyrirlesari á að segja við hverja glæru
(getur sett inn í speaker notes eða skilað í
sérstöku skjali. Þú ræður hvaða
efni þú velur en gerðu ráð fy rir að
námsefnið eigi að vera nokkrar mínútur
að keyra (svona minnst 5 og mest 25 glærur) og henti til
fjarkennslu og að vera sett upp á vef t.d. með hljóði
seinna meir. Gerðu ráð fyrir að þetta sé
efni sem hentar í Powerpoint Presenter seinna meir.
Skoðaðu hérna nokkur
dæmi um glærusýningar í Powerpoint
Presenter
Skrifaðu hugleiðingu um hvaða verkefni þú
gætir viljað taka og gera Powerpoint kennsluefni í
og skrifaðu í vefannálinn þinn. Þetta
má vera stutt og þú getur talið upp nokkrar
hugmyndir að efni.
Liður í að gera glærusýningu er að
undirbúa, búa til, æfa og setja svo tilbúna
glærusýningu út á vefinn (þessi
fjögur stig eru Plan, Prepare, Practice, and Present,
sjá nánar hérna )
Um hvað á glærusýningin að vera?
Fyrir hverja á hún að vera?
Hver er tilgangur með henni?
Hvað á hún að kenna?
Skrifaðu hugleiðingu í vefannálinn þinn(mátt
gjarnan hafa fleiri en eina hugmynd í huga, þú
velur seinna þá sem þú vilt gera). Þetta
má vera stutt, hér eru dæmi
:
Dæmi 1: "Mig langar til að gera glærusýningu
um ljósmyndaföndur, mig langar að kynna hvernig
maður getur búið til úrklippubækur með
fjölskyldumyndum og alls konar bakgrunnum og teiknuðum
myndum og pappírsklippi. Þessi glærusýning
á að vera fyrir fullorðið fólk og hugsanlega
fólk á eftirlaunum."
Dæmi 2 : " Mig langar að gera glærusýningu
um fæðupýramídann og hvernig eigi að
velja eitthvað frá hverjum fæðuflokki. Ég
hef í huga að gera efni fyrir börn frá 10
ára aldri og þetta getur verið í tengslum
við heimilisfræði/matreiðslukennslu í skólastarfi.
Powerpoint í fjarkennslu
Ég hugsa að þið flest notið Powerpoint
glærur fyrir ýmis konar kynningar. Ég veit líka
að sumir kennarar nota þetta verkfæri með nemendum
þ.e. nemendur skila og kynna viðfangsefni í Powerpoint.
Einnig færist það í vöxt að fyrirlesarar
setja Powerpoint glærur út á vefinn fyrir nemendur/hlustendur
til að hlaða niður. Powerpoint nýtist í
fjarkennslu bæði sem verkfæri til að setja glærurnar
óbreyttar á Netið og þá getur viðtakandi
hlaðið þeim niður og skoðað þær
en einnig í kerfum eins og Real Presenter þar sem við
getum talað inn á glærur í Powerpoint og
síðan sett glærusýninguna á vefinn
til að hún spilist í Real Player eða Windows
Media Player. Það er líka hægt að nota
Microsoft Producer til að búa til kerfi í Powerpoint
2002. Microsoft Producer er hægt að hlaða ókeypis
niður fyrir þá sem hafa Powerpoint 2002 og það
kerfi getur tekið inn hljóð og hreyfimyndir á
ýmis konar formi. Fleiri kerfi eru til eins og Presenter.com.
Ég hugsa að svona Powerpoint sýningar séu
eitt einfaldasta verkfæri sem við höfum til að
búa til margmiðlunarefni eða svona "streaming
media" fyrir fjarkennslu. Ég hvet ykkur til að skoða
möguleika sem Powerpoint býður.
Ég safnaði saman slóðum yfir aðila sem
bjóða Powerpoint bakgrunna o.fl. ef það skyldi
nýtast einhverjum.
Powerpoint
bakgrunnar
Myndir fyrir powerpoint getum við svo fengið í dgl.microsoft.com
Spila
tónlist af geisladiski undir Powerpoint 2002 glærusýningu
Sýna
Powerpoint 2002 á tölvu sem er ekki með forritið
uppsett og ekki með nettengingu (pack and go)
Nota
hljóð, hreyfimyndir og myndskeið með glærusýningu
í Powerpoint 2002
Búa
til vefleiðangur (webquest) í Powerpoint 2002
Láta
nemendur búa til kynningu á sér í Powerpoint
2002
Powerpoint kennsla:
Powerpoint in the classroom
Powerpoint
tips
Effective
Presentations
Designing
Effective Visuals
Kennsluefni
um Powerpoint frá MS
Kennsluefni
frá Hafdísi Dögg Hafsteinsdóttur
Powerpoint
2000 frá Þórunni Óskarsdóttur
Fjarnám
í Powerpoint hjá Kristínu
Glærusýningarforrit
- Powerpoint 2000 frá Magnúsi Þorkelssyni
Skoða nánar um fjarnám:
Kennslumiðstöð
Háskóla Íslands
Nánar um strauma
www.straumar.is
Hægt er að hlusta á útvarpstöðvar
víða á Netinu t.d. á
vTuner |