home syllabus assignments materials community

Til baka

Persónulegur vefur - Leiðbeiningar

Nemendur eiga að gera persónulegan vef með efni að eigin vali. Þetta á að vera safn af vefsíðum en frjálsar hendur eru með uppsetningu á þessu, einungis eru gerðar þær kröfur að vefsíðurnar endurspegli að nemandinn hafi náð valdi á því að hanna vefsíður, setja upp efni á vef á smekklegan og stílhreinan hátt, geti hagnýtt sér myndefni af vefnum og/eða sett eigið myndefni á vef og geti tengt í efni á Netinu.

Dæmi um forsíðu á persónulegum vef hjá nemenda á NKN-2002. Skilasíðan er aðgengileg frá forsíðu.

Mikilvægt er að á forsíðu komi nafn nemandans fram og tölvupóstfang og hvenær vefsíðan var gerð eða seinast uppfærð.

Dæmi um fjölskylduvefsíður frá nemanda á Nám og kennsla á Netinu vorið 2002

Dæmi um vefsíðu fyrir ættarmót hjá nemanda á NKN 2002

Mikilvægt er að hafa titil á öllum vefsíðum.

Athugið að semja efni á vefsíðum þannig að það sé auðvelt að sjá að það sé rétt t.d. Ekki segja: "Ég er nemandi á öðru ári í KHÍ" nema alla vega dagsetningin komi fram - á næsta ári ertu nemandi á þriðja ári og þá verða þessar upplýsingar rangar.

Hugmyndir í sambandi við persónulegan vef:

* Vefsíður tengdar fjölskyldu - það er gaman að hafa myndir og upplýsingar um börnin og sumarleyfisferðir.

* Ættarvefur - það er gaman að tína saman efni um ættirnar og gamlar ljósmyndir eða myndir af hlutum sem eru mikilvægar fyrir ættina.

* Tómstundagaman - það er hægt að stilla upp myndum af tómstundagamni og safni af slóðum sem nýtast manni við það t.d. í sambandi við jól eða mataruppskriftir.

* Félagsmál - Ef til vill ertu í félagsskap það sem sniðugt væri að koma upp vefsíðu fyrir t.d. saumaklúbbur, ferðaklúbbur, matarklúbbur o.s.frv.

Þetta eru bara nokkrar hugmyndir, mundu bara að hanna vefinn þinn þannig að auðvelt sé að bæta við síðum og breyta því sem fyrir er.

©2002 Salvör Gissurardóttir