|
|
| Markmið
námskeiðs : |
| 20.50.31.016 / 21.50.51.026 Upplýsingatækni
og skólastarf (3e)
Tími: 3. misseri í staðbundnu námi, 5.
misseri í fjarnámi.
Viðfangsefni: Á þessu inngangsnámskeiði
er farið yfir upplýsingatækni og skólastarf
og litið til margra átta. Nemendur takast á við
ýmsar grundvallarspurningar, svo sem um hlutverk tækninnar
í skóla, þróun tækninotkunar í
félagslegu ljósi, væntingar sem við tæknina
eru bundnar og möguleg áhrif upplýsingatækni
á nám og kennslu með hliðsjón af ýmsum
greinasviðum og þáttum í skólastarfi.
Jafnframt er á námskeiðinu lagður mikilvægur
grunnur hvað snertir verklag, tæknilega færni og
tæknilæsi. Nemendur setja upp verk- og ferilmöppu
á vefnum, leita fanga á bókasafni og netinu,
skoða dæmi um ýmsa nýbreytni og framsækið
skólastarf, ræða saman á vefnum og miðla
hver öðrum af því sem þeir verða
vísari.
Námsmat: Verkefni metin til einkunnar.
|
|
|
| Kennari:
|
Salvör
Gissurardóttir salvorgi@simnet.is (umsjónarmaður
námskeiðs)
Aðrir kennarar:
Torfi Hjartarsson
torfi@khi.is (umsjón með skólaverkefni í
staðbundnu námi)
Lára Stefánsdóttir lara@lara.is (fyrirlestrar,
framlag í fjarkennslu)
Þuríður Jóhannsdóttir tjona@khi.is
(fyrirlestur)
Karl Jeppesen kjepp@khi.is (sýnikennsla, verkstæðisvinna
í stafrænni vídeómyndagerð)
Manfred Lemke manni@khi.is (Frontpage leiðsögn, stafræn
vinnsla)
|
|
|
| Námsefni:
|
Vefsíða
námskeiðsins er www.asta.is/skolastarf
Bent er á námsefni og verkfæri á vef
sem aðgengileg eru frá vefsíðu námskeiðsins.
Einnig er bent
á að í íslenskum bókaverslunum fást
leiðbeiningarrit m.a. um Frontpage vefsmíðaverkfærið,
Powerpoint glærugerðarforritið.
Allir nemendur
verða að hafa tölvupóstfang, vefdagbók
(blogg) og vefsvæði. |
|
|
| Námsáætlun
- tímaplan: |
| Tímaáætlun er frábrugðin
eftir því hvort um er að ræða fjarnám
eða staðbundið nám
Þátttaka og virkni í umræðum bæði
á vef og í leiðarbók (bloggi)l verði
allt misserið í tengslum við yfirferð.
| Verkefni/Dagsetn. |
Hvað
er viðfangsefnið: |
Hvaða
verkefni á að skila: |
| 1.september |
Leiðarbækur á
Netinu |
Gera verkefni
í blogger |
| 15. september |
Að búa til einfalt
verkefni fyrir nemendur sem þjálfar þá
í að leita að upplýsingum á Netinu
(vefrallý)
Að búa til námsefni á vef sem notar
margs konar miðlun (glærur, tal og e.t.v. myndskeið) |
(skil
á vefrallý, fyrstu drög að kennsluefni
í powerpoint)
|
| 1. október |
Að læra vefsmíði
í Frontpage og setja ýmis verkefni á vef.
Að spá í tæknisögu og eigin notkun
á tækni.
Að kynnast ePortfolio þ.e. að halda ferilmöppu
á vef sem verkfæri í námi og kennslu
|
(skil
á vefleiðangri, skil á tæknisögu,
fyrstu drög að persónulegum vef) |
| 15. október |
Að kynnast samskiptakerfum
á vef
Að kynnast "open source" hugbúnaði. |
(Taka
þátt í umræðum á vef
- phpbb) |
| 1. nóvember |
Að skoða hvernig tæknin er
notkun í skólakerfinu með að skoða
einstakan skóla, fara í vettvangsferð þangað
|
(skil á skólaverkefni,
skil á kennsluefni í powerpoint) |
| 15. nóvember |
Að kynnast ýmis konar vefverkfærum
og nýrri tegund af þekkingarnetum |
(hafa prófað
verkfæri til hópvinnu á vef - wiki - kaza
- msn) |
| 1. desember |
Að útbúa "rafræna
sýnimöppu" fyrir afrakstur námskeiðsins
Að byggja upp efnivið til áframhaldandi þróunar
(halda áfram að safna í skilamöppu og
halda áfram að skoða nám út frá
nemandanum) |
(skil á persónulegum
vef, skilasíða) |
|
|
|
| Verkefni:
|
| Námsmat á þessu námskeiði
er fólgið í verkefnum.
Nánari lýsing á verkefnum er á verkefnasíðu
1. (20 %) Persónulegur vefur.
2. (10 %) Skilasíða fyrir verkefni í námskeiðinu
3. (5 %)Vefrallý
4. (10 %) Vefleiðangur fyrir skólastarf
5. (10 %) Kennsluefni í Powerpoint og á vef.
6. (10 %)Dagbók í Blogger, hana á að halda
alla önnina(skrifa nokkrum sinnum í viku)
7. (20 %) Skólaverkefni. Athugun/kynning á upplýsingatækni
í ákveðnum skóla
8. (5 %) Tæknisaga. Hvernig notar þú tæknina
árið 2002? Hvers væntir þú af tækninni?
9. (5 %)Virkni. Þátttaka og virkni í umræðum
á vef og tölvuspjalli í tengslum við innlegg
kennara.
10.(5 %)Prófanir. Prófun á ýmis konar
verkfærum.
Þessi
síða var síðast uppfærð
September 1, 2003
|
|
|
|
|
|
©2001
Nafn þess sem hannar námskeiðið
|