home syllabus assignments materials community

Fjarnemar 2003   Staðnemar 2003   Kennarablogg   Smávegis um tölvuvírusa

Skoðið sýnishorn af verkefnum (vídeóupptökur í Movie Maker 2) og kynningar (vídeó og powerpoint sett saman í Microsoft producer). Skoðið einnig skilasíður nemenda í staðnámi og fjarnámi.

kynningar
sınishorn
verkefnasíður staðnema og fjarnema

Sjáið hvað þau hafa unnið frábær verkefni í vetur !!!
(ekki alveg allt komið inn - námskeiðinu lýkur ekki fyrr en 1. desember)

 

Skólaheimsókn (bara fyrir nemendur í staðbundna náminu - ekki fyrir fjarnema)
Staðnemar 5 nóvember (miðvikudagshópur) og 6 nóvember (fimmtudagshópur)

Hér eru leiðbeiningar frá Torfa um hver á að fara hvað: http://starfsfolk.khi.is/torfi/utss2003

Stefnt er að heimsóknum miðvikudaginn 5. nóvember kl. 13 fyrir nema í miðvikudagshópi og fimmtudaginn 6. nóvember kl. 13 fyrir nema í fimmtudagshópi. Gætið þess að mæta stundvíslega í heimsókn og viðtöl. Munið að fólkið sem tekur á móti ykkur eða veitir viðtöl er að gefa af dýrmætum tíma sínum. Ekki eyða honum í óþarfa. Reynið engu að síður að fá sem allra mest út úr heimsókn og viðtölum, spyrja margra spurninga og fara sem vandlegast yfir allt sem um er rætt.

Heimsóknirnar eru allar kl. 13 nema heimsóknin í Breiðholtsskóla á fimmtudag sem er hálftíma fyrr, kl. 12.30. Eðlilegast er við komuna að finna skrifstofu skóla og spyrja eftir þeim sem ætla að taka á móti hópunum og hafa umsjón með viðtökunum. Þeir eru eftirtaldir:

Miðvikudag:

Melaskóli - Ragnheiður Benediktsson umsjónarmaður tölvumála
Víkurskóli - Ágústa Bárðardóttir aðstoðarskólastjóri
Árbæjarskóli - Björn Jónasson umsjónarmaður tölvumála

Fimmtudag:

Vesturbæjarskóli - Edda Kjartansdóttir umsjónarmaður tölvumála
Breiðholtsskóli - Kolbrún Hjaltadóttir umsjónarmaður tölvumála
Salaskóli - Hafsteinn Karlsson skólastjóri

Rétt er að taka fram að umsjónarmenn tölvumála bera ýmsa titla þó að hér kalli ég þá alla umsjónarmenn.

Sjálfur er ég að kenna báða dagana kl. 13 og get lítið gert ef eitthvað kemur upp á, reyni að fylgjast með tækjalánum til hópanna. Aðalatriðið er að fólk í hópunum tali sig saman, þá gengur þetta allt upp. Fólk þarf að passa að enginn í hópnum sitji eftir vitandi ekkert um hina og að einhver sé með upptökutæki og myndavél. Einhverjir þurfa líka að rata í skólann.

Hópar fyrri daginn verða að skila sínum tækjum fyrir kl. 11 morguninn eftir svo að hóparnir síðari daginn geti fengið þau að láni í tæka tíð.

Ef einhver krísa kemur upp um eittleytiði má reyna að hringja í gagnasmiðju og biðja Áslaugu eða Eirík að ná í mig upp í tölvustofu, síminn hjá þeim er 563 3860, skal vera búinn að nefna þetta við þau.

Minni ykkur svo á að vanda myndatökur, reyna að ná mörgum og góðum myndum, hugsa viðtöl sem best, spyrja margra spurninga opnum huga. Nýtið þetta tækifæri til að fá sem skýrasta mynd af skólanum ykkar og þætti upplýsingatækni í námi, kennslu, stjórnun og annarri starfsemi við hann.

Bestu kveðjur, Torfi

Velkomin á vefsíðu námskeiðsins Upplýsingatækni og skólastarf.
Vefsíða námskeiðsins er www.asta.is/skolastarf
Salvör Gissurardóttir hefur umsjón með námskeiðinu

Námskeiðið er í boði í Kennaraháskóla Íslands á kjörsviði í upplýsingatækni.
Námskeiðið er bæði fyrir nemendur í staðbundnu námi og nemendur í fjarnámi. Námskeiðið er að hluta með fjarkennslusniði (námskeiðsvefur, tölvupóstur, vefannálar, uppbygging á vefsvæðum nemenda) og að hluta með fyrirlestrum og tímum í tölvuveri. Fjarnemendur hefja námskeiðið á staðbundinni lotu í ágústmánuði en nemendur í staðbundnu námi vinna í tölvuveri eftir hádegi á fimmtudögum.

Listi yfir nemendur (nöfn, vefsíður, netföng, annálar)

Námskeiðslýsing í náms- og kennsluskrá 2002-2003
20.50.31.016 / 21.50.51.026 Upplýsingatækni og skólastarf (3e)

Tími: 3. misseri í staðbundnu námi, 5. misseri í fjarnámi.

Viðfangsefni: Á þessu inngangsnámskeiði er farið yfir upplýsingatækni og skólastarf og litið til margra átta. Nemendur takast á við ýmsar grundvallarspurningar, svo sem um hlutverk tækninnar í skóla, þróun tækninotkunar í félagslegu ljósi, væntingar sem við tæknina eru bundnar og möguleg áhrif upplýsingatækni á nám og kennslu með hliðsjón af ýmsum greinasviðum og þáttum í skólastarfi. Jafnframt er á námskeiðinu lagður mikilvægur grunnur hvað snertir verklag, tæknilega færni og tæknilæsi. Nemendur setja upp verk- og ferilmöppu á vefnum, leita fanga á bókasafni og netinu, skoða dæmi um ýmsa nýbreytni og framsækið skólastarf, ræða saman á vefnum og miðla hver öðrum af því sem þeir verða vísari.

Námsmat: Verkefni metin til einkunnar.

Forkunnátta:
Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið skyldunámskeiði í upplýsingatækni í kjarna kennaranáms.

©2002 Salvör Gissurardótti

Forsíðumyndin er samsett úr myndum nemenda á námskeiðinu úr skólaheimsókn í Garðaskóla og af Háteigsskóla og myndir af nokkrum skólum sem þátttakendur á námskeiðinu starfa í.