home syllabus assignments materials community

Til baka

Dagbók í Blogger - Leiðbeiningar

Blogger leiðbeiningar

Blogg fyrir byrjendur

Annálar voru ekki eingöngu skrifaðir á Íslandi 1400-1800, það er núna kominn blómatími nýrrar tegundar af annálum - nú er auðvelt að búa sér til annál á vefnum og skrá í tímaröð hvað sem manni dettur í hug. Ekki eingöngu texta, það má vísa í vefslóðir og myndir og jafnvel hljóðskrár. Þetta er miklu, miklu einfaldara en gera vefsíður eða setja upp umræðulista og hver sem er getur sett upp sinn eigin annál og byrjað að birta heimsbyggðinni skrif sín.

Skrifin koma í tímaröð - það nýjasta efst. Þannig eru líka annálarnir eins konar fréttamiðlar, geta verið ópersónuleg fréttabréf eða innilegar dagbækur sem lýsa dýpstu þrám og tilfinningum. Hér er úrvalsverkfæri til ýmis konar ferilsvinnu - verkefna sem standa yfir langan tíma og þróast smám saman. Í námi nútímans leggjum við áherslu á að nemandinn byggi upp eigin þekkingu og sé meðvitaður um sína þekkingar- og skilningsleit. Ég held að annálar af þessum toga séu ágætt verkfæri til þess að skrá svona feril einhvers konar náms - líka persónulega þroskasögu. Það er hægt að nota svona dagbækur á vefnum á ýmsa vegu, breyta ásýnd hennar svo hún passi viðkomandi og skrifa í hana hvenær sem manni dettur í hug. Kannski nokkrum sinnum á dag, kannski líða einhverjar vikur á milli.

Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að nemendur skrifi vefdagbók 2-3 sinnum í viku alla önnina og í henni m.a. fjallað um námið, tengt í vefslóðir og sett fyrstu drög að verkefnum eða uppkast að því sem síðar fer á vefsíður. Einnig er gert ráð fyrir að samskipti farai fram gegnum vefdagbók, gegnum athugasemdakerfi og skrif í dagbók.

Verkfæri:

Blogger.com

Haloscan.com


©2002 Salvör Gissurardóttir