Nám og kennsla á Netinu 2003
Aðalsíða

Heim  
Nemendur  

Námskeið 2002   


Nám og kennsla á Netinu vor 2003.
Námskeið í framhaldsdeild framhaldsdeild.khi.is
Námsbraut í tölvu- og upplýsingatækni tolvupp.khi.is
Námskeiðið Nám og kennsla á Netinu 2003 www.asta.is/nkn3
Námskeiðið í fyrra www.asta.is/nkn2
Ýmis námsgögn fyrir NKN námskeiðið nkn.khi.is

Þessi vefsíða er í smíðum.. Síðast uppfært 31-jan-03

Staðbundin lota var 14-18 janúar 2003.
Næsta staðbundna lota verður UT-2003 ráðstefnan á Akureyri.
Gistimöguleikar og ferðir Tilboð er um ferðir á 4500 kr.

Hópur A mætti 14 janúar kl. 13-17, 15 janúar kl. 9-17, 16 janúar kl. 9-17
Hópur B mætti 16 janúar kl. 9-17, 17 janúar kl. 9-17, 18 janúar kl. 9-13

Eins og fram kom í staðbundnu lotunni þá er miðað við að fyrstu verkefnaskil í námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu verði laugardaginn 1. febrúar. Hér fylgir með yfirlit yfir hvað þá á að vera búið (4 atriði) og í sérstökum bréfum eru svo leiðbeiningar með hverju atriði um sig.

Varðandi verkefnaskil 1. febrúar - hvað þarf að vera búinn með?

1) Hafa tekið í notkun eigin vefdagbók (blogger dagbók, geymd á blogspot.com )og byrjað að skrá þar innlegg og kunna að tengja í annað efni.
2) Hafa tekið í notkun eigin vefsvæði - athuga það nægir að það sé komin upp bara ein síða (index.htm). Skrifa í vefdagbókina hver slóðin er að vefnum þínum (hafa það tengingu)
3) Hafa skrifað pistil um lýsingu á aðstæðum varðandi tækni sem þú býrð við núna. (þetta á að setja á vefsíðu seinna en það er allt í lagi að það sé bara tilbúið sem texti eða uppkast núna og skráð sem innlegg í vefdagbókina þína.
4) Hafa skrifað inn í vefdagbókina hugmynd um VEFRALLÝ sem notar ákveðna vefi, leitarvélar og/eða gagnasafn Morgunblaðsins eða stutta lýsingu af þeim leitarvélum og leitaraðferðum sem þú notar á vefnum.

Nú eiga allir að vera búnir að setja upp blogg.
Athuga að þau virka ekki hjá öllum.
Póstlisti námskeiðins er nkn03@khi.is

Búin að tengja í blogg á blogspot.com sem virkuðu 31-jan-03
Sendið mér línu á salvor@khi.is ef einhverjar breytingar.

Hérna eru myndir af nemendum á námskeiðinu

Kennarablog (Salvör og fleiri) asta.blogspot.com/nkn/index.htm

Andrés Ellert Ólafsson aeo@islandia.is andresellert.blogspot.com X
Anna Sigríður Erlingsdóttir annadia@centrum.is golmina1.blogspot.com X
Anna Magnea Harðardóttir annam@gardabaer.is annamagnea.blogspot.com X
Árni Guðmundsson arni.gudmunds@simnet.is addigum.blogspot.com
Auður Huld Kristjánsdóttir audh@ismennt.is audurhuld.blogspot.com
Baldur McQueen Rafnsson bar@strik.is baldurmcqueen.blogspot.com
Bára Mjöll Jónsdóttir bmj@ismennt.is baramjoll.blogspot.com
Berglind A. Ásmundsdóttir baa@ismennt.is berglinda.blogspot.com
Bolette Höeg Koch bhk@ismennt.is bolettte.blogspot.com
Elín Þóra Stefánsdóttir eths@bolungarvik.is elin-thora.blogspot.com X
Elísabet Katrín Benónýsdóttir elisabet@gardabaer.is ellakaja.blogspot.com X
Eva Sigurbjörg Káradóttir eva@eyjar.is evak.blogspot.com
Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson eythor@ismennt.is eythorbjarki.blogspot.com X
Fanný Kristín Heimisdóttir fannyh@strik.is fannyhe.blogspot.com
Gerður Guðmundsdóttir gerdur@ismennt.is gerdurgudmundsdottir.blogspot.com X
Guðrún Angantýsdóttir gan@ismennt.is gudrunangnatys.blogspot.com X
Guðrún Gunnarsdóttir ggunn@ismennt.is XXX
Guðrún Jóna Óskarsdóttir gjona@ismennt.is gunnjona.blogspot.com
Gunnar Björn Melsted gunnar@snsk.kopavogur.is gunnarmelsted.blogspot.com
Hallgrímur Hróðmarsson halhro@eyjar.is halhro.blogspot.com
Hildur Guðmundsdóttir mur@islandia.is hildurgu.blogspot.com
Ingibjörg Friðriksdóttir ingfri@ismennt.is ingfri.blogspot.com X
Ingigerður Sæmundsdóttir ingsae@ismennt.is ingigerdur.blogspot.com X
Ingólfur Sigurðsson isig@ismennt.is isig.blogspot.com
Jóhanna Guðrún Björnsdóttir jbjorns@ismennt.is (?)
Katrín Ósk Þráinsdóttir katrino@ismennt.is katrinoskt.blogspot.com
Kristín Steinarsdóttir stina@ismennt.is kristinst.blogspot.com
Kristín I Mogensen km@ismennt.is krismo.blogspot.com
Lilja Björk Ólafsdóttir magni@mmedia.is liljabjork.blogspot.com X
Lovísa Kristjánsdóttir eða Lovísa lovisak@mh.is lovisak.blogspot.com
Margrét Sverrisdóttir margsve@grunnborg.is margsve.blogspot.com X
Ólöf Sigríður Björnsdóttir olof@ismennt.is olofs.blogspot.com
Rannveig Vigfúsdóttir rvigf@ismennt.is rannveigvigf.blogspot.com
Rún Halldórsdóttir runhal@simnet.is (dagbók frá 2002)
Sigríður Guðnadóttir siggud@ismennt.is siggag.blogspot.com
Sigríður Kristín Óladóttir siggaola@aknet.is siggaola.blogspot.com X
Sigþrúður Katrín Eyjólfsdóttir ske@mmedia.is XXX
Sólveig Friðriksdóttir solveig@verslo.is solfrid.blogspot.com
Þorkell Daníel Jónsson keli@ismennt.is tdj.blogspot.com
Þórunn Helga Traustadóttir thtraust@ismennt.is thtraust.blogspot.com

Sent 26. janúar
Dagbókarskrif - kennarablogg - snið og uppsetningar fyrir blogg og vefi

Komið þið sæl,

Ég fylgist með hvernig gengur hjá ykkur, aðalsamskiptamáti okkar núna eru leiðarbækurnar sem þið skrifið í Blogger. Sjá yfirlit yfir þær á www.asta.is/nkn3 Ég er búin að setja upp eitt blogg sem er ætlað að vera fyrir kennara á þessu námskeiði, það er á slóðinni http://asta.blogspot.com/nkn/index.htm það er ekki alveg tilbúið en ég hef til hliðar þar sett upp spjallreit (tagboard) og þar getið þið skrifað inn stutt skilaboð til mín. Ég ætla líka að setja inn þar athugasemdakerfi (comment) svo þið gætuð skrifað stutt skilaboð t.d. um tæknileg vandamál en það hefur komið fram ósk um slíkt. Takið eftir að uppsetning á þessu bloggi er ekki eitt af þessum hefðbundnu frá blogger, það er hægt að skipta um uppsetningar á blogger með því að að fara inn í template og í staðinn fyrir tilbúnu uppsetningarnar hjá Blogger er hægt að setja ýmis konar aðrar uppsetningar (ég sótti t.d. tilbúna uppsetningu á http://www.blogskins.com og breytti henni). ÉG MÆLI EKKI MEÐ ÞVÍ AÐ ÞIÐ BREYTIÐ UPPSETNINGU Á ÚTLITI LEIÐARBÓKAR STRAX ef hún virkar. Ef þið viljið gera slíkar tilraunir, búið þá til önnur blogg. Þetta segi ég vegna þess að það eru oft ýmsir hnökrar sem koma á bloggið þegar skipt er um bakgrunna og breytt uppsetningum (t.d. nota sum bloggskinn alls konar myndir og þær koma ekki fram nema þið flytjið þær á eigin vefsvæði og kallið rétt á þær).

Núna í byrjun skulum við einbeita okkur sem mest að inntaki í bloggum, að læra að setja texta, setja inn tengingar og setja inn tengingar í myndir. Við verðum að gera þetta með að nota hefðbundinn htm kóða
Tenging í slóð:
<a href="...slóð...">texti</a>
Dæmi: <a href="http://www.khi.is">Kennó</a>
Tenging í mynd:
<img src="...slóð á mynd...">
Dæmi: <img src="http://www.asta.is/myndir/handrit.jpg">

Í efri glugganum í blogger kemur þessi html kóði fram en þegar hún hefur færst niður (þegar þið ýtið á post and publish) þá verður hún niðri að tengingu eða mynd sem birtist. Athugið sérstaklega að gleyma ekki gæsalöppum og oddklofum, það má ekkert bil vera milli gæsalappa og slóðar sem er milli gæsalappa.

Það er sífellt að verða algengara að við skiljum á milli inntaks og útlits (svona svipað og þið sem þekkið Frontpage vefi getið skipt um "Theme" þar og þið sem þekkið Powerpoint getið skipt um "Template" þar. Ég held að það sé skynsamlegt fyrir ykkur á þessu stigi að hugsa um ykkar persónulega vef og leiðarbók þannig að það sé mjög líklegt að þið skiptið um útlit þegar líður á önnina. Þess vegna er skynsamlegra að vinna núna meira núna í inntakinu og halda sig við einfaldar uppsetningar.

Varðandi ykkar persónulega vef þá þarf fyrir 1. febrúar eingöngu að vera kominn með heimasvæði og búið að setja amk eina vefsíðu þar, þ.e. aðalsíðu svo ég sjái hvort allt virki ekki. Hún þarf ALLS EKKI að vera í endanlegu formi, það er nóg vera á henni núna smátexti um hvaða hugmyndir þið hafið um hvaða síður eigi að tengjast ykkar vef og hver eru helstu áhugasvið (t.d. vill kannski einhver gera undirsíður um ferðaklúbb, annar byrja á ættarvef, einn gera fræðsluefni um sérstakan sjúkdóm, einn vef um hverfið sitt eða heimaslóðir, einn um mataruppskriftir... o.fl. o.fl. ..).

Í næstu viku fer ég í persónulegar vefsíður og hvernig við setjum upp vef í Dreamweaver MX. Ég veit að það eru ekki allir komnir með forritin en það er heilmikið sem þið getið gert samt varðandi undirbúning að vefsíðugerðinni. Við skulum líka alltaf hafa að leiðarljósi að verja mestum tíma í að pæla í og setja upp inntakið og láta uppsetninguna taka mið af því og helst að hafa uppsetninguna sem einfaldasta til að byrja með. Þið þurfið t.d. ekkert að hafa myndir eða bakgrunna á vefsíðu sem þið skilið 1. febrúar.

bestu kveðjur,
Salvör Gissurardóttir

Sent 23. janúarÉg vil biðja alla að skrifa stutta kynningu á sér inn á bloggsíðuna ykkar.
Þið getið komist í yfirlit yfir blogg annarra á námskeiðinu á vefsíðu námskeiðsins http://www.asta.is/nkn3
Ég er þar búin að setja tengingar í þau blogg sem virka, endilega látið mig vita ef það gengur illa að skrá inn eða ef ég er með vitlausa slóð á blogg.

Núna í þessari viku skulum við leggja áherslu á bloggdagbækurnar, að prófa að skrifa inn. og lesa líka dagbækur hjá hinum. Bið alla sem ekki hafa skrifað inn í Blogger frá því að við vorum í staðbundnu lotunni að gera það strax svo ég sjái að allt sé í lagi.

Vinnulagið er svona:
* Fara á vefinn www.blogger.com og slá inn notendanafn og lykilorð
* Smella á nafnið á blogginu ykkar (undir Your blogs)
* Skrifa inn textann sem á að vera í blogginu ( í stóra innsláttargluggann)
* Smella á Post&Publish efst til hægri og bíða smástund (það kemur generating pages... skilaboð)
* Ef allt er í lagi færist textinn niður (í neðri gluggann á skjánum)
* Smella svo á view web page (lengst til vinstri í valröndinni á milli innsláttargluggans og neðri gluggans)
* Núna á að opnast nýr gluggi í vafranum ykkar á slóð xxxx.blogspot.com


Ég held að þátttakendur á námskeiðinu þekkist ekki allir, sumir voru ekki á námskeiðinu fyrir jól. þess vegna bið ég alla að skrifa stutt blogg sem er lýsing á ykkur t.d. hvar þið búið á landinu, hvar þið starfið og eitthvað um bakgrunn og áhugamál - eða bara það sem þið viljið. Svo hinir á námskeiðinu og ég sjái hver er hver þá ætla ég líka að biðja ykkur að tengja í mynd af ykkur á blogginu ykkar.
Þið getið ekki geymt myndir á blogginu (nema þeir sem hafa sett keypt þannig blogspot aðgang) en þið getir vísað í myndir sem eru geymdar annars staðar.
Til að tengja í mynd á bloggi verður að skrifa svona HTML kóða inn:
<img src="....slóð á mynd...">
Þetta verður að vera mjög nákvæmt, oddklofar báðum megin og slóð milli gæsalappa og engar eyður.
Ég setti litlar myndir af þátttakendur á námskeiðinu er á http://www.asta.is/nkn3/nemamyndir/
Segjum að Elín Þóra ætli að setja tengingu í myndina sem er þar af henni á bloggið sitt.
Þá fer hún á myndasíðuna, hægri smellir og velur properties og afritar slóðina http://www.asta.is/nkn3/nemamyndir/x27.gif að myndinni (hægri smellir aftur á address og velur Copy)
Síðan fer Elín Þóra inn í bloggið sitt og skrifar (límir inn slóðina en skrifar hitt) :
<img src="http://www.asta.is/nkn3/nemamyndir/x27.gif">

Ef myndin ætti að vera vinsti jöfnuð þá má bæta við align=left áður en oddklofi endar:
<img src="http://www.asta.is/nkn3/nemamyndir/x27.gif" align=left>


Bið þá sem hafa keypt vefsvæði á Blogspot (var búin að sjá amk tvo sem hafa gert það) og ætla að setja allt sitt efni þar. ATHUGIÐ að þið megið ekki sjálf setja þar vefsíðu index.htm því það er sjálft bloggið sem er sjálfkrafa skrifað ofan í af Blogger. Bið ykkur að setja aðalheimasíðuna ykkar á heima.htm á blogspot.com svæðinu ykkar. Allir aðrir hafa hins vegar aðalheimasíðuna sína index.htm.

*************************************************

Glærur frá Þuríði Jóhannsdóttur frá fyrirlestri hennar í staðbundnu lotunni Námsumhverfi á Neti - Að byggja á námskenningum og nýta kosti miðilsins eru á vefnum á slóð:http://ust.khi.is/nkn2/honnun[1].ppt
Vil einnig benda á vefsíðu Þuríðar með ýmsu sem tengist þessu námskeiði m.a. vísun í lokaritgerð hennar "Veiðum menntun í netið", slóðin er http://ust.khi.is/nkn2/

 

Með kveðju

Salvör Gissurardóttir

*****************************************************

Sent 22. janúar

Komið þið sæl,

Eins og við töluðum um í staðbundnu lotunni þá langar mig til að gera tilraun á þessu misseri um að hafa
Tölvuver A205 í Kennaraháskólanum bókað fyrir nemendur á námsbraut í upplýsingatækni á eftirfarandi laugardögum þegar ekki er kennsla í stofunni núna á haustmisseri. Næsta laugardag verður kennsla í stofunni á námskeiðinu Margmiðlun til náms og kennslu þannig að stofan er upptekin og fyrsti laugardagurinn sem stofan er bókuð fyrir námsbrautina er því 1. febrúar.

Þetta er ekki hugsað sem neins konar kennsla, heldur fyrst og fremst opið hús fyrir nemendur sem vilja koma og læra hver af öðrum og í sameiningu og nota aðstöðu í KHÍ. Þetta nýtist auðvitað bara nemendum á Stór-Reykjavíkursvæðinu eða þeim sem eru í bænum einhverja þessa laugardaga. Ég vil benda ykkur á að í Hamri, nýbyggingu KHÍ er góð aðstaða til að læra og vinna með öðrum t.d. ýmis vinnuborð í bókasafninu og ef þið komið með fartölvu með netspjaldi þá getið þið komist í samband við Internetið (það er hins vegar vandamál með innstungur, þær eru ekki of margar).

Í Gagnasmiðju á fyrstu hæð eru skannar og þar geta nemendur fengið lánaðar stafrænar myndavélar og þar er veitt aðstoð um notkun á skönnum og myndavélum. Vissara er að panta myndavélar með fyrirvara.

Afgreiðsla í bókasafni KHÍ er í síma 563 3863
Afgreiðsla í Gagnasmiðju er í síma 563 3860
Vefsíða um vinnuaðstöðu í KHÍ: http://menntasmidja.khi.is/vinnuadst.htm

Opnunartímar
Opnunartími gagnasmiðju og bókasafns á virkum dögum er kl. 8 til 18
Opnunartími bókasafns á laugardögum er kl 10 til 15
Opnunartími gagnasmiðju á laugardögum er kl. 8 til 16 (amk fram að páskum)

Hér er listi yfir hvaða daga tölvustofa A205 hefur verið frátekin:
-----Original Message-----
From: Bjorg Sigurdardottir
Sent: mið. 22.1.2003 09:57
To: Salvor Gissurardottir
Cc:
Subject: Tölvustofa


Sæl Salvör

Ég bókaði tölvustofuna A205 eftirtalda laugardaga kl: 9.25-14:40 fyrir
nemendur framhaldsdeildar í upplýsingatækni:

1., 5., 15., 22., febr.
1., 8., 22., 29., mars
5. apríl og 3. maí

Kveðja
Björg Sigurðardóttir

***************************************************************************

Sent 21 janúar

Komið þið sæl og takk fyrir samveruna í staðbundnu lotunni.
Eins og fram kom í staðbundnu lotunni þá er miðað við að fyrstu verkefnaskil í námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu verði laugardaginn 1. febrúar. Hér fylgir með yfirlit yfir hvað þá á að vera búið (4 atriði) og í sérstökum bréfum eru svo leiðbeiningar með hverju atriði um sig.

Varðandi verkefnaskil 1. febrúar - hvað þarf að vera búinn með?

1) Hafa tekið í notkun eigin vefdagbók (blogger dagbók, geymd á blogspot.com )og byrjað að skrá þar innlegg og kunna að tengja í annað efni.
2) Hafa tekið í notkun eigin vefsvæði - athuga það nægir að það sé komin upp bara ein síða (index.htm). Skrifa í vefdagbókina hver slóðin er að vefnum þínum (hafa það tengingu)
3) Hafa skrifað pistil um lýsingu á aðstæðum varðandi tækni sem þú býrð við núna. (þetta á að setja á vefsíðu seinna en það er allt í lagi að það sé bara tilbúið sem texti eða uppkast núna og skráð sem innlegg í vefdagbókina þína.
4) Hafa skrifað inn í vefdagbókina hugmynd um VEFRALLÝ sem notar ákveðna vefi, leitarvélar og/eða gagnasafn Morgunblaðsins eða stutta lýsingu af þeim leitarvélum og leitaraðferðum sem þú notar á vefnum.

Bestu kveðjur,

Salvör Gissurardóttir

**************************************************************

1) Verkefni - eigin vefdagbók
Sent 21. janúar

Komið þið sæl,

Í staðbundnu lotunni í janúar byrjuðum við að skrá í dagbækur á vefnum og frá þeim tíma þá verður þetta svona minnisbækur eða glósubækur ykkar á vefnum sem þið haldið út námskeiðið og skrifið reglulega í. Gert er ráð fyrir að það sé skrifað í þessar vefdagbækur amk. þrisvar í viku allt misserið.

Við bjuggum til dagbækur og notuðum til þess kerfið www.blogger.com Dagbækurnar voru vistaðar á blogspot.com og slóðin er þessi t.d. hjá Lilju Björk http://liljabjork.blogspot.com (athuga að ekki má skrifa www fyrir framan). Prófið að skrifa meira inn og athugið hvort ég er með uppgefið rétta slóð á blogspot fyrir ykkur. Sjá nafnið fyrir aftan nöfnin ykkar, þetta kemur ef þið veljir view web page inn í blogger.

Andrés Ellert Ólafsson aeo@islandia.is andresellert
Anna Sigríður Erlingsdóttir annadia@centrum.is golfusina1
Anna Magnea Harðardóttir annam@gardabaer.is annamagnea
Árni Guðmundsson arni.gudmunds@simnet.is addigum
Auður Huld Kristjánsdóttir audh@ismennt.is audurhuld
Baldur McQueen Rafnsson baldurr@ismennt.is XXX
Bára Mjöll Jónsdóttir bmj@ismennt.is XXX
Berglind A. Ásmundsdóttir baa@ismennt.is berglinda
Bolette Höeg Koch bhk@ismennt.is bolettte
Elín Þóra Stefánsdóttir eths@bolungarvik.is elin-thora
Elísabet Katrín Benónýsdóttir elisabet@gardabaer.is ellakaja
Eva Sigurbjörg Káradóttir eva@eyjar.is evakara
Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson eythor@ismennt.is eythorbjarki
Fanný Kristín Heimisdóttir fannyh@strik.is fannyh
Gerður Guðmundsdóttir gerdur@ismennt.is gergud
Guðrún Gunnarsdóttir ggunn@ismennt.is XXX
Guðrún Jóna Óskarsdóttir gjona@ismennt.is gunnjona
Gunnar Björn Melsted gunnar@snsk.kopavogur.is gunnarmelsted
Hallgrímur Hróðmarsson halhro@eyjar.is halhro
Hildur Guðmundsdóttir mur@islandia.is hildurgu
Ingibjörg Friðriksdóttir ingfri@ismennt.is ingfri
Ingibjörg Sæmundsdóttir ingsae@ismennt.is ingsae
Ingólfur Sigurðsson isig@ismennt.is isig
Jóhanna Guðrún Björnsdóttir jbjorns@ismennt.is
Katrín Ósk Þráinsdóttir katrino@ismennt.is katrinosk
Kristín Steinarsdóttir stina@ismennt.is kristinst
Kristín I Mogensen km@ismennt.is krismo
Lilja Björk Ólafsdóttir magni@mmedia.is liljabjork
Lovísa Kristjánsdóttir lovisak@mh.is lovisak
Margrét Sverrisdóttir margsve@ismennt.is margsve
Ólöf Sigríður Björnsdóttir olof@ismennt.is olofs
Rannveig Vigfúsdóttir rvigf@ismennt.is rannveigvigs
Rún Halldórsdóttir runhal@simnet.is (hefur dagbók)
Sigríður Guðnadóttir siggud@ismennt.is siggag
Sigríður Kristín Óladóttir siggaola@aknet.is siggaola
Sigþrúður Katrín Eyjólfsdóttir ske@mmedia.is XXX
Sólveig Friðriksdóttir solfrid@ismennt.is solfrid
Þorkell Daníel Jónsson keli@ismennt.is tdj
Þórunn Helga Traustadóttir thtraust@ismennt.is thtraust
Vilmundur Hansen kip@isl.is vilmundur

Vefsíða sem ég hef sett upp um vefannála er:

http://www.asta.is/blogg

http://www.simnet.is/annalar/

Leiðbeiningar með blogger:

Sjá skjámynd á http://www.simnet.is/annalar/val01/posts1.gif

Að setja inn krækjur:
<a href="http://www.mbl.is">Morgunblaðið</a>
Þessi html kóði kemur bara fram í glugganum þegar við erum að skrifa pistilinn, ekki þegar hann er kominn út á Netið.

Að setja inn myndir:
<img src="andlit.gif" align="left"> Ef ég er með mynd sem heitir andlit.gif og er geymd á sama stað og dagbókin mín þ.e. inn í sömu möppu á heimasvæðinu mínu þá get ég birt hana svona í dagbókinni minni ef ég vil að hún komi vinstri jöfnuð.
<img src="http://www.khi.is/khi/top01.jpg"> Ef ég vil birta myndir sem eru á öðrum vefjum þá verð ég að hafa nákvæmlega slóðina að myndinni inn á milli gæsalappa. Ég get séð hver slóðin að mynd á vefnum er með því að hægrismella á hana og fara í properties. Almennt er ekki gott að birta myndir á öðrum vefjum því vefsíðan sem maður vísar í getur hvenær sem er horfið.

Posts - til að skrifa inn texta, þetta er það sem við erum oftast að gera. Það er bara í byrjun þegar við erum að setja upp dagbókina eins og við viljum að við þurfum að fara í Settings og Template.
Settings - Stillingar t.d. að breyta hvar dagbókin er vistuð, hvernig formið á dagsetningu er og hvað margir pistlar birtast og hvernig eldri pistlar eru geymdir.
Template - Uppsetning, hvernig útlit er á vefsíðunni sem dagbókin birtist á. Hægt er að velja um nokkur útlit (choose a new template). Athuga þarf að íslenskir stafir birtast ekki rétt í template í núverandi útgáfu af blogger(hægt að laga).

Þú bloggar með því að skrifa inn texta, smella svo á Post & Publish til að setja textann inn í blogger og gefa hann út (gera opinberan). Ef allt gengur vel þá er bara að smella á View web page, þá sérðu hvernig dagbókin kemur út á vefnum.

Til að byrja með getið þið verið með þessar ókeypis dagbækur á blogspot en þá koma auglýsingar efst. Seinna (þ.e. fyrir 1 mars ) vil ég að þið hafið bloggerdagbókina ykkar án auglýsinga og þá verðið þið að borga fyrir það, sjá www.blogspot.com (fara neðst á síðu til hægri, velja Upgrade Now og þið getið valið Blog*Spot Ad-Free (kostar $15 á ári) þ.e. blogger dagbók án auglýsinga eða Blog*Spot Plus25 (kostar $5 á mánuði) en þá fáið þið 25 mb heimasíðusvæði sem býður upp á að geta sett myndir beint inn á blogger, einnig að búa til fleiri vefdagbækur og setja á þær lykilorð (t.d. vefdagbækur sem ekki allir mættu sjá). Ég ráðlegg þeim sem ekki hafa annað heimasíðusvæði með ftp aðgangi að velja þennan kost og geta þeir þá sett allar vefsíður sem tilheyra þessu námskeiði þar. Einnig ráðlegg ég þeim sem halda að þeir hafi oft myndir á vefdagbók að nota þetta.

Bestu kveðjur,

Salvör Gissurardóttir

*******************************************

2) Eigin heimasíðusvæði
Sent 21 janúar

 

Eigin heimasíðusvæði

Allir nemendur á námskeiðinu Nám og kennsla á netinu verða að hafa heimasíðusvæði með ftp aðgangi. Ekki er sjálfgefið að svæði sem þið hafið getað notað fyrir frontpage bjóði upp á ftp aðgang. Vefsvæði hjá Ísmennt bjóða upp á þannig aðgang en það þarf að biðja sérstaklega um að láta opna fyrir sig heimasíðusvæði hjá Ísmennt (senda beiðni um það á sos@ismennt.is )

Til að búa til tengingu í dreamweaver mx milli möppu á harða disknum ykkar (C-drifinu) og vefsvæðisins þá verðið þið að hafa upplýsingar um
host name (hvað heitir vefþjónninn? hjá ísmennt er það www.ismennt.is, hjá símnet er það heim.simnet.is )
user name (notendanafnið ykkar, oftast það sama og notendanafnið í tölvupóstinum)
password (sérstakt lykilorð fyrir heimasíðusvæðið)

Síðan þurfið þið að vita hvernig er kallað á heimasíðusvæðið, hjá ísmennt er það www.ismennt.is/not/notendanafn fyrir venjulega notendur. Hjá simnet er það www.simnet.is/notendanafn
Ef það er vefsíða á vefsvæði sem heitir index.htm eða default.htm þá förum við beint í það skjal (sem gjarnan vísar á aðrar vefsíður á svæðinu okkar) en ef við ætlum að skoða önnur skjöl beint þá verður að gefa upp vefskjalið í slóðinni t.d. www.ismennt.is/not/notendanafn/prufa1.htm

Ég hef eins og er bara námsefni sem miðar við Dreamweaver 4 en er að uppfæra það fyrir Dreamweaver MX. Þig getið á meðan litið á
http://www.ismennt.is/vefir/ari/nkn/dreamweaver4/dr1.htm Lexia 1
http://www.ismennt.is/vefir/ari/nkn/dreamweaver4/dr2.htm Lexia 2
http://www.ismennt.is/vefir/ari/nkn/dreamweaver4/dr3.htm Lexia 3

Dreamweaver MX er hægt að fá ókeypis í 30 daga hjá www.macromedia.com en ég var áður búin að senda ykkur hvernig þið getið fengið skólaútgáfu af Macromedia Studio MX og Ólöf Björnsdóttir sagði frá ennþá hagstæðari tilboðum. Munið að hafa samband við Víglund ef þið hafið ekki þegar gert það!!!

bestu kveðjur,
Salvör Gissurardóttir

********************************************************************************

3) Lýsing á eigin aðstæðum
Sent 21. janúar

Það eru tvær vefsíður (stuttar ritgerðir eða pistar )sem mig langar til að biðja alla að gera (þ.e. byrja á núna og laga svo og endurbæta seinna) og mig langar til að biðja ykkur að hugleiða og skrifa einhvern texta sem á að fara inn á þessar síður í vefdagbókina ykkar og skila 1. febrúar. Þetta á bara að vera uppkast, má vera svona stikkorð eða minnisorð fyrir ykkur, við erum líka að æfa okkur í að nota vefdagbókina fyrir uppköst af efni sem við ætlum að vinna með seinna.

1) Lýsing á aðstæðum varðandi tækni sem þið búið við núna:
Lýsing á hvaða tækni sem varðar upplýsingasamfélagið eru þið eruð að nota núna í ársbyrjun 2003 bæði í heimili, starfi og daglegu lífi og hvernig notið þið hana og hvernig gengur. Má gjarnan vera óformlega orðað og líka innihalda litlar frásagnir á hvernig þig og/eða fjölskyldan notar tæknina , hvernig tölvu eruð þið með, hvernig Internettengingu, hvar tengist þið?, hvernig notið þið Internetið? Er fleiri en ein tölva á heimilinu? Eruð þið með fartölvu? verslið þið í matinn gegnum Internetið? Kaupið þið eitthvað á Netinu eða hlaðið þið niður dóti þaðan? Eruð þið með GSM ? Líka svona dagsetningar sem sýna innreið ykkar í tækniheiminn, hvernær senduð þið fyrst tölvupóst, hvenær fenguð þið GSM, hvenær settuð þið upp vef fyrst? Hvaða tækni eruð þið að nota í vinnunni? hvernig hafa vinnuaðstæður breyst miðað við tækni? Hafið þið samband við einhverja erlendis gegnum tölvupóst, notið þið þetta til að styrkja tengsl við ættingja? Hefur tölvupóstur/GSM eða önnur samskiptaverkfæri breytt hvernig þig hafið samskipti? Eruð þið með aðgang að breiðbandi? Hvað dettur ykkur í hug varðandi tækninotkun? eruð þið að nota þráðlausar tölvur, eru þið að nota einhver tölvustýrð tæki eða tæki sem tengjast við tölvur (stafrænar myndavélar/upptökuvélar, rafræn vöktun etc) á heimili eða í starfi?

Ég vona að ef við öll söfnum upplýsingum um aðstæður okkar og ekki síst námsaðstæður á þennan hátt og lýsum öll með okkar eigin orðum og hver lýsing/frásögn er á einni síðu þá séum við komin með mikilsverðan fróðleik, langar til að benda ykkur á sem sýnishorn einn vef sem er reyndar um annað en samanstendur af svona einstaklingsfrásögnum um tækniþróun (sjá http://www.simnet.is/konur/reynslusogur/index.htm ). Í okkar tilviki væri það að svona að fá svona mynd af á hvaða róli við erum núna. Gaman væri að hafa eitthvað myndefni sem tengist þessu t.d. myndir af fjölskyldu eða ykkur að nota tæknina sem þið hafið í dag.

2) Hver er framtíðarsýn ykkar - einn áratug fram í tímann??
Hér langar mig til að biðja ykkur að spá fram í tímann hvernig þið teljið líklegast að tæknilegar aðstæður ykkar hafi breyst eftir tíu ár bæði hvað varðar vinnu, nám og heimili? Hvernig tölvubúnað komið þið til með að hafa? Hvað komið þið með að geta gert sem þið getið ekki í dag? Hvernig hefur tæknin breytt vinnu ykkar? Hvernig hefur tæknin breytt samskiptum ykkar við aðra og heimilishaldi?

Bestu kveðjur,

Salvör Gissurardóttir

*********************************************************************

4) Hugmynd um vefrally
Sent 21. janúar

Skrifa inn í vefdagbókina hugmynd um VEFRALLÝ sem notar ákveðna vefi, leitarvélar og/eða gagnasafn Morgunblaðsins eða stutta lýsingu af þeim leitarvélum og leitaraðferðum sem þú notar á vefnum.

Við æfum notkun á vefdagbók fyrir hugmyndir, verk í vinnslu og uppkast af því sem við fullvinnum seinna með því að skrifa annað hvort hugmynd að vefrallý þar eða lýsingu á því hvernig þið leitið að efni á vefnum.

Þetta á að vera mjög einfalt, er fyrst og fremst æfing fyrir okkur í að nota vefdagbók.

Leiðbeiningar um vefrallý eru á :http://www.asta.is/nkn2/vefrally.htm

Athugaðu að hér er bara verið að biðja um uppkast.
Vefrallý


Vefrallý er einföld gerð af vefverkefnum fyrir nemendur og er góð til að þjálfa nemendur í að safna kunnáttuatriðum. Vefrallý er eins og að setja spurningakeppni á vefinn og í staðinn fyrir að þátttakendur treysti á eigið minni þá mega þeir vera á vefnum og leita að svörum og sá vinnur sem finnur upplýsingarnar á sem skemmstum tíma. Við getum skipulagt þetta á ýmsan hátt eins og spurningakeppnir t.d. látið nemendurna vera í liðum eða hópum. Nemendur gætu átt að svara spurningum með einu orði eða setningu eða viða að sér annars konar þekkingu t.d. finna og hlaða niður kortum, myndum, eyðublöðum, finna og nota vefverkfæri, afrita og líma inn texta eða hvaðeina sem lýtur að því að SAFNA UPPLÝSINGUM og vera fjótur að leita. Sem sagt, þá gengur vefrallý út að finna þekkingaratriði og vera fljótur að því. Svona verkefni getur verið sniðugt sem kynning á nýju efni eða kynning á einhverjum nýjum vef og umfangsmiklum vef eða sem þjálfun í að leita að efni á vefnum.

Ég held líka að þetta sé frekar auðveld og fljótlegt fyrir kennara að semja vefrallý og eftir því sem ég hef lesið þá virðast nemendum finnast svona verkefni mjög skemmtileg. Hér hef ég búið til vefrallý um Umhverfisvef Reykjavíkur.
Vefrallý - vefsíða e. Salvöru á NKN-2002 námskeiðsvef.


BEstu kveðjur,

Salvör Gissurardóttir

**********************************************************************

Sent 9. janúar

Sent á póstlistann nkn03@khi.is

Við munum á námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu nota forritin Dreamweaver MX (fyrir vefsíðugerð) og Fireworks MX (fyrir myndvinnslu fyrir vefinn). Það er nauðsynlegt fyrir ykkur að hafa þessi forrit.

Nánari upplýsingar um þessi forrit fást á vefsíðu framleiðandans www.macromedia.com og þar er hægt að hlaða niður ókeypis útgáfu sem gildir í 30 daga en rennur þá út. Aco Tæknival selur skólaútgáfu af þessum forritum í forritaknippi sem kallast Macromedia Studio MX (við munum nota forritið Flash seinna í áfanganum) og kostar það um 29 þúsund (sjá hér fyrir neðan).

Afar gott væri ef þið gætuð útvegað ykkur þessi forrit fyrir eða strax eftir staðbundnu lotuna í næstu viku þ.e. hefðuð þau uppsett hjá ykkur strax eftir staðbundnu lotuna.

bestu kveðjur,

Salvör Gissurardóttir

*****************************************************************
Úr bréfi frá Víglundi Péturssyni hjá Aco um tilboð á Macromedia Studio MX:

<viglundur.petursson@atv.is>
Dagsetning: mið, janúar 8, 2003 3:32 pm

AcoTæknival hf, Skeifunni 17
Tilboð númer: ST038458

Macromedia Studio MX Win Education

Skólapakki / 1 notandi

Inniheldur:

Dreamweaver MX

Flash MX

Fireworks MX

Freehand

Coldfusion MX, developer 3

Samtals ISK með VSK 29.185,00

**************************************************************

Sent 8. janúar

Ég vil bjóða ykkur öll velkomin á námskeiðið Nám og kennsla á Netinu 2003. Þetta námskeið verður í ár að miklu leyti með sama sniði og námskeiðið í fyrra, sjá vefslóð www.asta.is/nkn2 en ég er nú að setja upp vefsíðu fyrir okkar námskeið og það verður www.asta.is/nkn3 sem verður með sömu uppsetningu. Þangað til sá vefur er alveg kominn upp bið ég ykkur að skoða hvernig námskeiðið var í fyrra, ekki hvað síst að skoða skilaverkefni nemendanna í fyrra.

Það verða þó nokkrar viðbætur frá námskeiðinu í fyrra og langar mig hér sérstaklega að geta þriggja:

1) Meiri áhersla á alþjóðleg verkefni - samstarfsverkefni milli landa - að útbúa vefefni á fleiri en einu tungumáli (t.d. bæði á íslensku og ensku)
2) Áhersla á margmiðlun á vef (myndstrauma, hljóðglærur o.fl.)
3) Áhersla á "open source" verkfæri.

Tímann fram að staðbundnu lotunni sem hefst í næstu viku langar mig til að biðja ykkur að nota til æfa ykkur í að nota leitarvélar og leita að efni á vefnum. Sjá leiðbeiningar frá því í fyrra:
http://www.asta.is/nkn2/namslota1.htm

Sérstaklega langar mig að biðja ykkur að þekkja vel möguleika á leitarvélinni www.google.com og hafa skoðað gagnasöfn á www.mbl.is/gagnasafn og www.hvar.is
Kennaraháskólanemar hafa aðgang að gagnasafni Morgunblaðsins
notendanafn er kristin
lykilorð er hamar

Einnig langar mig til að biðja ykkur fram að staðbundnu lotunni að safna saman efni (texta og myndum) sem þið viljið hafa á persónulegri heimasíðu (koma með texta í ritvinnsluskjali og myndir á stafrænu formi).

Ég veit að sum ykkar eruð að fara á BETT ráðstefnuna, vona að það verði skemmtilegt og þið getið sagt okkur stuttlega frá hvað ykkur þótti markverðast þar.

Bestu kveðjur,
Salvör Gissurardóttir
***************************************************************

 






 

 

 

 

© 2002 Salvör Gissurardóttir salvor@ismennt.is
Vefsnið frá songlam.com