Nám og kennsla á Netinu vor 2002
Lýsing á verkefnum

Heim   



 

Hönnun á kennsluvefjum/vefsíðugerð (2 ein)

Kennarar/umsjón: Salvör Gissurardóttir

1 Hver nemandi þarf að hafa eigin heimasíðu/vef og þar undir gera sérstaka vefsíðu yfir verkefnaskil í námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu. Einn liður í því er að halda vefannál sem skrifað er amk þrisvar í viku allt námskeiðið, er þetta hugsað sem nokkurs konar glósubók á vefnum um efni námskeiðsins. Mörg verkefni eru þannig að um þau á að skrifa hugleiðingu í dagbókina og t.d. vísa þaðan í slóðir.
Sjá dæmi um Skilasíður nemenda vorið 2002

 

2 Vefleiðangur um sjálfvalið efni.
(sjá dæmi um vefleiðangra á www.ismennt.is/vefir/ari/banki )

3 Vefleiðangur eða annars konar vefverkefni um sögufræga staði s.s.Þingvellir, Njáluslóðir, Skagafjörð, . Efnið getur tengst sögu, náttúrufræði, jarðfræði, gróðurfari, trúarbrögðum, þjóðtrú, handverki, mannlífi og búskaparháttum, atvinnulífi, dýralífi. Markhópur er börn og unglingar á aldrinum 10-14 ára eða fjölskyldur eða ferðamenn og áherslan er á hópverkefni þar sem markmiðið eða afurðin er að framkvæma eitthvað eða búa eitthvað til gjarnan í tengslum við ferðalag á svæðið. Þetta verkefni gæti verið í tengslum við menningartengda og vistvæna ferðamennsku (culture tourism, ecotourism).
4 Kennsluefni á vef (3 eða fleiri vefsíður). Þessi vefur má gjarnan vera í tengslum við annan hvorn vefleiðangurinn.
5 Umræðuframlög og skrif í vefannála (metið lokið/ólokið) t.d. prófun/umræða um verkfæri, þarfagreining og skoðun á vefsíðum, umræður í tengslum við efni staðbundinnar lotu í janúar.

Námsumhverfi á vefnum og netsamskipti (1 ein)

Kennari/umsjón: Salvör Gissurardóttir


1 Gera áætlun fyrir námskeið sem notar Netið þ.e. hanna námsumhverfi
2 Umræðuframlög (metið lokið/ólokið) og dagbókarinnlegg um námsumhverfi og um UT2001
3 Umræðuframlög og þátttaka í netsamskiptum og prófun á verkfærum (metið lokið/ólokið)

 

Nýting í skólastarfi (1 ein)

Kennarar/umsjón Sólveig Jakobsdóttir

1 Umræðuframlög metin lokið/ólokið
2 Eigindlegar athuganir á Netnotkun. Geta t.d. falið í sér mat á vefefni sem hannað hefur verið fyrr í áfanganum.

Lokaverkefni (1 ein)

Kennarar/umsjón Salvör Gissurardóttir

Á vefnum Kennslufræði Netnáms hjá Þuríði Jóhannsdóttur eru ábendingar um hvað hafa ber í huga við lokaverkefni. Lokaverkefnið er ein eining og er því um það bil vikuvinna sem áætluð er í það sérstaklega. Lokaverkefni má gjarnan tengjast öðrum verkefnum sem unnin eru á námskeiðinu en gera þarf grein fyrir því á skilasíðu.

Gjarnan má vinna lokaverkefni í samvinnu við aðra nemendur og/eða aðra aðila.

Birt með fyrirvara um breytingar.
Fyrst sett á vef 7-jan-02
Síðast breytt 13-nov-02

Copyright © 2002 Salvör Gissurardóttir
Vefsíðusnið frá songlam.com