Markmið

Að þátttakendur:
* Nái góðu valdi á hönnun
og tæknilegri uppsetningu og geti sett upp og haldið
við vefsíðum tengdum kennslu og skólastarfi
* Geti útbúið fræðsluefni á
Netinu á ýmiss konar formi.
* Geti búið til námsumhverfi og hannað
námsferli á vef þar sem námsefnið,
vinnusvæði nemenda, námsmat, samskipti og
hópvinna mynda heild.
* Þekki til rannsókna og tilraunaverkefna um
Netið í skólastarfi og geti tengt nýja
tækni kenningum um nám og kennslu.
* Geti skipulagt ýmis konar nýtingu á
Neti í skólastarfi
* Geti leiðbeint og ráðlagt skólastjórnendum
og kennurum um Netnotkun.
Námsmat
Námsmat: Verkefni (sjá lista)
Verkefnaskilatímasetningar
Gert er ráð fyrir að verkefnum verði dreift
á (deadline), þ.e. dreifa á önnina
til að hjálpa nemendum við að dreifa álagi.
1. febrúar
1. mars
20. apríl
16. maí lokaskil á öllum verkefnum
Spurningar sem þú átt að geta svarað
játandi eftir að þessu námskeiði
lýkur:
* Getur þú sett upp vef sem er kynning á
þér og því sem þú hefur
gert? (persónulegur vefur)
* Getur þú skipulagt verkefnavinnu fyrir nemendur
í þekkingarsamfélagi? (vefleiðangur)
* Getur þú útbúið námsefni
fyrir nemendur í þekkingarsamfélagi? (kennsluvefur)
* Getur þú útbúið ýmis
konar efni fyrir vefumhverfi? (ritgerðir, ýmis
konar vefir)
* Hefur þú náð góðu valdi
á verkfærum? (myndvinnsla og vefsíðugerð)
* Hefur þú prófað verkfæri til
samskipta/gagnvirkni? (vefumræða, gagnvirkni á
vefsíðum)
* Hefur þú haldið annál á vefnum
alla önnina ? (blogger 2-3 sinnum í viku)
* Hefur þú kynnt þér upplýsingatækni
í íslensku og erlendu skólastarfi?
* Hefur þú kynnt þér hugmyndir og
námskenningar um hvernig Internettæknin verði
best notuð í skólastarfi og hvernig hún
gæti breytt skólastarfi?
* Hefur þú velt fyrir þér hvernig
iðnaðarsamfélag er að breytast í
þekkingarsamfélag
* Er til listi þar sem sjá má hvað
þú hefur gert í tengslum við þetta
námskeið? (skilasíða)
Athugasemdir/undanfari: Skyldunámskeið. Nær
yfir eina önn.
|
Námskeiðslotur
Viðfangsefni/vinnulag: Leitast verður við
að nota þær kennsluaðferðir sem byggja
á veftækni og nýjum Netverkfærum sem
mest í þessu námskeiði og þjálfa
þannig nemendur til vinnu í slíku umhverfi.
Nauðsynlegt er að nemendur hafi aðgang að fremur
öflugri nýlegri tölvu á heimili eða
vinnustað og hafi tök á að hlaða þar
inn og prófa margs konar búnað.
Gert er ráð fyrir að námskeiðið
skiptist í námslotur sem munu fjalla um:
- Hönnun á kennsluvefjum/vefsíðugerð
- Námsumhverfi á vefnum og Netsamskipti
- Nýting í skólastarfi
Námið er bæði fjarnám og staðbundið
nám.
Gert er ráð fyrir þessum námslotum:
1. Fjarnám 15. janúar til 23 janúar
2. Staðbundin lota 24-26 janúar
3. Fjarnám 27 janúar - 28 febrúar
4. Staðbundin lota 1- 2 mars
5. Fjarnám 3 mars - 17 apríl
6. Staðbundin lota 18 -20 apríl
7. Fjarnám 21 apríl - 16 maí

Þekkingarsamfélagið
Á þessu námskeiði skoðum við
einnig þær hröðu breytingar á samskiptatækni
sem nú eiga sér stað og reynum að spá
í hvaða áhrif þessi tækni mun
hafa eða hefur þegar haft á menntun og námsumhverfi
og alla fræðslutengda upplýsingamiðlun
í samfélaginu. Við skoðum einnig hvernig
störf eru að breytast og hvernig námsumhverfi
þarf að breytast til að búa nemendur undir
gerbreytta starfshætti.
|