Tímaáætlun yfir námslotur
og verkefnaskil
Hér
koma fyrstu drög að yfirferð miðað við
tíma og lýsing á verkefnum. Námið
er bæði fjarnám og staðbundið nám.
Gert er ráð fyrir sjö námslotum sem
fjalla um
- Hönnun á kennsluvefjum/vefsíðugerð
- Námsumhverfi á vefnum og Netsamskipti
- Nýting í skólastarfi
1. Fjarnám 15. janúar til 23 janúar
2. Staðbundin lota 24-26 janúar |
Verkefnaskil 1. febrúar |
3. Fjarnám 27 janúar - 28 febrúar
4. Staðbundin lota 1- 2 mars |
Verkefnaskil 1. mars |
5. Fjarnám 3 mars - 17 apríl
6. Staðbundin lota 18 -20 apríl |
Verkefnaskil 20. apríl |
7. Fjarnám 21 apríl - 15 maí |
16. maí lokaskil á öllum verkefnum |
1. Fjarnám 15. janúar til 23 janúar
Efni:
Leit
á vefnum, vefannálar, þarfagreining og
mat á vefsíðum, efnissöfnun fyrir vefsíðugerð.
Hvernig finnum við efni á vefnum? (leitarvélar,
gagnasöfn o.fl.)
Hvernig setjum við efni á vef á auðveldan
hátt? (vefannálar, ferilmöppur á
vef)
Hvernig á að meta efni á vefsíðum?
(mat og þarfagreining)
Verkefni: Setja upp vefannál og skrá í
hann amk 2-3 í viku allt námskeiðið,
eitt verkefni varðandi leitarvél (safna slóðum
um tiltekin verkefni), mat og þarfagreining á
kennsluvef/fræðsluvef skv. gátlista.
Nánari upplýsingar
um námslotu 1 ->
2. Staðbundin lota 24-26 janúar
Efni:
Vefsíðugerð í Dreamweaver 4
Myndvinnsla fyrir vefinn í Fireworks 4
Vefhönnun
Námskenningar um menntun og Netið.
Verkefni: Gera eigin vef (ferilmöppu á vefnum,
persónulegan vef) og vefleiðangur.
Nánari upplýsingar
um námslotu 2->
3. Fjarnám 27 janúar - 28 febrúar
Áframhaldandi vinna í vefsíðugerð
og myndvinnslu, prófum á vefverkfærum,
hönnun á fræðslu- og upplýsingavefsvæðum,
undirbúningur fyrir UT2002. Fyrstu drög að
vef eiga að vera tilbúin fyrir UT2002.

Nánari upplýsingar
um námslotu 3->
4. Staðbundin lota 1- 2 mars
Dagana 1. – 2. mars nk. efna menntamálaráðuneytið
og MENNT, samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla,
til ráðstefnunnar UT2002 um notkun upplýsingatækni
á leik-, grunn-, framhalds- og háskólastigi,
með áherslu á námsefni á Netinu.
Gert er ráð fyrir að nemendur á Nám
og kennsla á Netinu komi á ráðstefnuna
UT2002, sæki fyrirlesta þar (amk einn sameiginlegur
fyrirlestur fyrir hópinn). Nemendur verða að
skrá sig sjálfir á ráðstefnuna.
Undanfarin 3 ár hefur menntamálaráðuneytið
staðið fyrir ráðstefnum sem tengjast notkun
upplýsingatækni í skólastarfi undir
heitinu UT. Þessum ráðstefnum hefur verið
vel tekið af skólafólki og með UT hefur
skapast vettvangur fyrir skólastjórnendur, kennara
og aðra áhugasama til að deila reynslu sinni,
lausnum og vandamálum á þessu sviði.
Ráðstefnan verður að þessu sinni
haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
undir slagorðinu: DREIFMENNTUN FYRIR ALLA - ALLS STAÐAR.
Nánari upplýsingar og skráning á
heimasíðu ráðstefnunnar: http://www.menntagatt.is/ut2002.
UT 2002 er tækifæri fyrir alla sem áhuga
hafa á breyttum kennsluháttum með notkun
upplýsingatækni í skólastarfi til
að kynna sér helstu nýjungar á þessu
sviði.
Nánari upplýsingar
um námslotu 4->
5. Fjarnám 3 mars - 17 apríl
Verkefnaskil 20. apríl
1 til 18 mars Umræða á webboard um UT-2002
18 mars - 7 apríl Nýting í skólastarfi
7 apríl - 18 apríl Vefsíðugerð
og vefhönnun, prófun á verkfærum.
Nánari upplýsingar
um námslotu 5->
6. Staðbundin lota 18 - 20 apríl
Á síðustu staðbundnu lotunni er áhersla
á verklega vinnu og að læra á og kynnast
vefverkfærum.
Inntak þessarar lotu verður vefsíðugerð,
vefsíðuhönnun og myndvinnsla fyrir vefinn.
Einn liður í þessari lotu er að nemendur
skoða vefverkefni hver hjá öðrum og gefa
ábendingar og því verða nemendur að
koma með einhver verkefni (vefleiðangra, persónulega
vefi o.fl) þannig tilbúin að þeir geti
fengið viðbrögð frá öðrum..
Nemendum á fyrri námskeiðum hefur fundist
þetta mjög gagnlegt.
Einnig varða ræddar hugmyndir (20-30 lína
lýsing nægir á þessu stigi) um hvaða
lokaverkefni (1 eining) nemendur ætla að vinna á
námskeiðinu.
Nánari upplýsingar
um námslotu 6->
7. Fjarnám 21 apríl - 15 maí
Síðustu þrjár vikur námskeiðsin
var farið í þessa þætti:
1. Dreamweaver
2. Kennsluefni á vef,
3. Námsumhverfi á vef - Skipulag á vefnámskeiði
4. Prófun á vefverkfærum
5. Framtíðarþróun - hvert stefnir
tæknin og skólakerfið?
Nánari upplýsingar
um námslotu 7-> 
síðast breytt
27-nov-02
Myndir eru frá Arttoday.com og ljósmyndir teknar
af Salvöru.
|