Guđrún Stella Gissurardóttir
Hanhóli, 415 Bolungarvík fax: 456 7284 netfang: gudrun.gissurardottir@svmvf.is Velkominn á vefsíđuna mína. Hér er stutt kynning á mér og fjölskyldu minni. Ég er stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi og B.Ed. frá Kennaraháskóla Íslands. Nú stunda ég mastersnám í fullorðinsfræðslu við Háskolann í Linköbing í Svíþjóð í fjarnámi og framhaldsnám í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands. Eftir kennarapróf fluttist ég til Vestfjarđa og var skólastjóri Í Holti, Önundarfirđi 1992-1995 og var síđan kennari í Bolungarvík til ársloka 1997. Frá árinu 1998 hef ég starfað sem forstöđumađur Svćđisvinnumiđlunar Vestfjarđa. Ég bý á bóndabćnum Hanhóli í Syđridal, Bolungarvík. Hanhóll er 5 km frá Bolungarvík og um 18 km frá Ísafirđi. Á Hanhóli er sauđfjárbúskapur. Ég hef starfað lengi að félagsmálum einkum atvinnumálum kvenna. M.a. hef ég átt sæti í eftirfarandi stjórnum, nefndum og ráðum:Jafnréttisnefnd Kópavogs, heilbrigðisnefnd Kópavogs, stjórn SUS, stjórn LSK, ritnefnd 19. júní, stjórn nemendafélags KHlI, stjórn Átaksverkefnis í atvinnumálum kvenna, Snerpu, stjórn At-kvenna, sjálfseignarstofnun, stjórn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, stjórn Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, ráðgjafanefnd Fjölmenningarseturs á Vestfjörðum, stjórn, Skógræktarfélags Bolungarvíkur stjórn Róta, áhugafélags um menningarfjölbreytni auk þess að taka þátt í ýmsum starfsnefndum. Nú er ég m.a. í nefnd um brottfall nemenda úr framhaldsskólum. Ég tek einnig virkan þátt í starfi Zontaklúbbsins Fjörgynjar á Ísafirði. Árið 2000 var ég ein þriggja kvenna sem hlaut Auðarverðlaunin, auður í krafti kvenna. AUÐUR í krafti kvenna - AUÐARverðlaunin 2000
Dćtur mínar Magnea Gná og Ásta Björg á jólunum 1997.
Helstu áhugamál mín eru atvinnu- og félagsmál, stjórnmál, sagnfrćđi og ćttfrćđi. Ég ligg sjaldan á skođunum mínum, enda af alrćmdu húnversku kjaftakyni frá Guđlaugsstöđum í Blöndudal, en um ţađ hefur svo veriđ ort: Međ óstöđvandi orđadyn öslar á hundavađi, ţetta frćga kjaftakyn kennt viđ Guđlaugsstađi.
Myndin hér fyrir ofan er tekin í júlí 1996 í garđinum viđ nýja húsiđ á Hanhóli en gamli bćrinn sést í bakgrunni. Fremst á myndinni er dóttir mín Ásta Björg viđ garđyrkjustörf.
Ţessi mynd er af móđur minni,mér og systkinum mínum og systurdóttur tekin á sjötugsafmćli móđur minnar 11. júlí 1996. Fjölskylda Sjá nánar um móðurættina (Guðlaugsstaðakynið) á vefsíðunni www.simnet.is/annalar/hvassahraun Ég er fćdd 9.4.1962. Eiginmađur minn er Jóhann Hannibalsson, f. 27.7.1954, bóndi og snjóathugunarmađur. Ég á fjórar dćtur, Ástu Björgu f. 3.1.1986, Ósk f. 5.3.1996 d.5.3.1996, Magneu Gná f. 3.4.1997 og Þorsteinu Þöll f. 26.4.1999. Systkini mín eru Salvör Kristjana, f. 26.2. 1954, viđskiptafrćđingur, lektor viđ KHÍ og sérfræðingur í forsætisráðuneytinu, í sambúđ međ Magnúsi Gíslasyni rafmagnsverkfrćđingi og á hún tvćr dćtur, Ástu Lilju f. 29.12.1973 og Kristínu Helgu f. 15.10.1989, Kristinn Dagur, f. 11.7. 1957, steypustöðvarstjóri Kópavogi; Hannes Hólmsteinn , f. 19.2. 1953 stjórnmálaheimspekingur og prófessor viđ HÍ. Foreldrar mínir eru Gissur Jörundur Kristinsson, f. 11.7. 1931, d. 28.7.1993 en hann var húsasmiđur og framkvćmdastjóri Verkamannabústađanna í Kópavogi, og kona hans, Ásta Hannesdóttir, kennari f. 26.7.1926 d.28.9.2000. Föđurćtt Gissur er sonur Kristins, vélstjóra í Reykjavík, Guđbjartssonar, b. á Sléttu í Ađalvík, Péturssonar, Eldjárnssonar. Móđir Kristins var Kristjana Kristjánsdóttir, b. á Sútarabúđum í Grunnavík, bróđir Péturs Eldjárnssonar. Móđir Gissurar var Salvör Gissurardóttir, b. á Hvoli í Ölfusi, Gottskálkssonar, b. í Sogni, Gissurarsonar, b. á Reykjum, Ţóroddssonar. Móđir Gissurar á Reykjum var Guđrún Sigurđardóttir, systir Bjarna riddara Sívertsen. Móđir Salvarar var Jórunn Snorradóttir, b. á Ţórustöđum í Ölfusi, Gíslasonar, b. á Kröggólfsstöđum, Eyjólfssonar, b. á Kröggólfsstöđum, Gíslasonar, ćttföđur Kröggólfsstađaćttarinnar. Móđir Snorra var Solveig, systir Ólafar, langömmmu Guđrúnar, móđur Bjarna Benediktssonar forsćtisráđherra, föđur Björns ráđherra. Móđir Jórunnar var Kristín, systir Björns, afa Bíla-Steindórs, afa Geirs Haarde ráđherra. Kristín var dóttir Odds, b. á Ţúfu í Ölfusi, Björnssonar. Móđir Odds var Guđrún Eyjólfsdóttir, systir Gísla á Kröggólfsstöđum. Móđir Kristínar var Jórunn Magnúsdóttir, b. í Ţorlákshöfn, Beinteinssonar, lögréttumanns í Ţorlákshöfn, Ingimundarsonar, b. í Hólum í Stokkseyrarhreppi, Bergssonar, ćttföđur Bergsćttar, Sturlaugssonar. Móđurćtt Ásta er dóttir Hannesar, b. á Undirfelli í Vatnsdal, bróđur Björns, fyrrv. alţingismanns á Löngumýri, og Huldu, móđur Páls Péturssonar ţingflokksformanns. Hannes var sonur Páls, b. á Guđlaugsstöđum í Blöndudal, bróđur Guđmundar prófessors. Fađir Páls var Hannes, b. á Eiđsstöđum, Guđmundsson, alţingismanns á Guđlaugsstöđum, Arnljótssonar, b. á Guđlaugsstöđum, Illugasonar, b. á Guđlaugsstöđum, Hannessonar. Móđir Hannesar var Guđrún Björnsdóttir, b. í Grímstungu í Vatnsdal, Eysteinssonar, bróđur Ingibjargar, langömmu Friđriks Sophussonar fjármálaráđherra. Móđir Ástu var Hólmfríđur Jónsdóttir, b. á Undirfelli, Hannessonar. Móđir Hólmfríđar var Ásta Bjarnadóttir, b. í Ţórormstungu, bróđur Kolfinnu, móđur Bríetar Bjarnhéđinsdóttur. Bjarni var sonur Snćbjarnar, b. í Forsćludal, bróđur Margrétar, móđur Arnljóts Ólafssonar, prests á Bćgisá. Slóðir: Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða At-konur áhugahópur um atvinnumál kvenna Vestfirðir Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum Fjarnám sem ég stunda 2001-2002 Fjarnám í fullorðinsfræðslu
við Linköping háskóla - Blackboard Fjarnám
við HÍ í náms- og starfsráðgjöf
- WebCT Breyta færslum í dagbókum - blogger.com
Hluti af ćttfrćđiupplýsingum eru fengnar úr Ćttfrćđivef DV. Myndirnar eru úr tölvumyndasafni Salvarar Kristjönu. Síđast uppfćrt 19-oct-01 |